Fara í innihald

Flateyjardalur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 15. júní 2006 kl. 19:08 eftir 82.221.55.94 (spjall) Útgáfa frá 15. júní 2006 kl. 19:08 eftir 82.221.55.94 (spjall)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Flateyjardalur liggur norður úr Fnjóskadal að sjó.

Um dalinn liggur jeppafær slóði yfir Flateyjardalsheiði sem einungis er fær að sumri. Vegna erfiðra samgangna fór dalurinn í eyði en þar mátti finna allnokkur býli. Það síðasta sem fór í eyði voru Brettingsstaðir árið 1953. Bærinn stendur enn og er notaður ásamt 2 öðrum reisulegum húsum á dalnum, efri Brettingsstöðum og Jökulsá, sem sumarhús.

Við Brettingsstaði stóð kirkja allt til 1959 en var þá flutt út í Flatey sem liggur skammt undan landi. Kirkjan hafði verið flutt að Brettingsstöðum frá Flatey 1894.

Á heiðinni sjálfri eru Heiðarhús sem er myndarlegt sæluhús, mikið nýtt af útivistarfólki.

Saga Flateyjardals er samofin sögu Finnboga Ramma sem fæddist á dalnum og var garpur mikill.