Fara í innihald

Lúsaka

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 7. mars 2013 kl. 21:52 eftir Addbot (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. mars 2013 kl. 21:52 eftir Addbot (spjall | framlög) (Bot: Flyt 93 tungumálatengla, sem eru núna sóttir frá Wikidata á d:q3881)

Lúsaka er höfuðborg Sambíu. Borgin stendur á hásléttu (í 1.400 metra hæð yfir sjávarmáli) sunnan megin í miðhluta landsins. Íbúar voru 1.640.000 talsins árið 2002.

Borgin var stofnuð af evrópskum landnemum árið 1905. Nafnið er dregið af nafni þorps sem áður stóð þar og hét Lusaaka eftir þorpshöfðingjanum. Vegna þess hve borgin var miðsvæðis, tók hún við af Livingstone sem höfuðborg bresku nýlendunnar Norður-Ródesíu árið 1935. Árið 1964 var hún gerð að höfuðborg sjálfstæðrar Sambíu.

Tenglar

  Þessi Afríkugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.