Fara í innihald

Fireball

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 9. mars 2013 kl. 02:05 eftir Addbot (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. mars 2013 kl. 02:05 eftir Addbot (spjall | framlög) (Bot: Flyt 4 tungumálatengla, sem eru núna sóttir frá Wikidata á d:q1418841)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Teikning af Fireball.

Fireball eða Eldhnöttur er um fimm metra löng grunnrist tvímenningskæna með eina trapisu, belgsegl og kantaðan skrokk. Hún var hönnuð af Peter Milne árið 1962. Skrokkurinn er ýmist úr krossviði, trefjaplasti eða samsettur en má mest vera 80 kíló að þyngd.

Á Íslandi voru nokkrir bátar af þessari gerð smíðaðir á 8. áratugnum, þeir fyrstu af félagsmönnum í Ými í Kópavogi 1972. Keppt var í flokknum til 1980.