Ísafjarðarbær
Útlit
Ísafjarðarbær | |
---|---|
Land | Ísland |
Kjördæmi | Norðvesturkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | Ísafjörður (íb. 2.742) Þingeyri (íb. 320) Suðureyri (íb. 300) Flateyri (íb. 335) Hnífsdalur (íb. 255) |
Stjórnarfar | |
• Bæjarstjóri | Daníel Jakobsson |
Flatarmál | |
• Samtals | 2.380 km2 |
• Sæti | 15. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 3.797 |
• Sæti | 17. sæti |
• Þéttleiki | 1,6/km2 |
Póstnúmer | 400, 401, 410, 425, 430, 470, 471 |
Sveitarfélagsnúmer | 4200 |
Vefsíða | http://www.isafjordur.is |
Ísafjarðarbær (66°04'N 23°09'W) varð til sem sveitarfélag 1. júní 1996 þegar sex sveitarfélög á Vestfjörðum sameinuðust í eitt. Þau voru, í stafrófsröð: Flateyrarhreppur, Ísafjarðarkaupstaður, Mosvallahreppur, Mýrahreppur, Suðureyrarhreppur og Þingeyrarhreppur. Helstu þéttbýlisstaðir sveitarfélagsins eru Ísafjörður (sem er jafnframt stærsta þéttbýli á Vestfjörðum), Hnífsdalur, Flateyri, Suðureyri og Þingeyri.
Fjórar sundlaugar eru á Ísafjarðarbæ, Sundhöllin á Ísafirði, Sundlaugin á Flateyri, Sundlaugin á Þingeyri og Sundlaugin á Suðureyri. Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar er Daníel Jakobsson
Svipmyndir
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Ísafjarðarbær.
-
Eyrin og Ísafjarðarkirkja
-
Veitingahúsið Faktorshúsið í Efstakaupstað
-
Eyri í Skutulsfirði. Mynd tekin úr Naustahvilft.