Fara í innihald

Kjörís

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 13. febrúar 2015 kl. 00:11 eftir Sarahjóns (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. febrúar 2015 kl. 00:11 eftir Sarahjóns (spjall | framlög) (Ný síða: Kjörís ehf. er ísframleiðandi á Íslandi og er staðsett í Hveragerði. Fyrirtækið hóf starfsemi 31. Mars 1969 og hefur alltaf verið staðsett í Hveragerði. Kjörís er fj...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Kjörís ehf. er ísframleiðandi á Íslandi og er staðsett í Hveragerði. Fyrirtækið hóf starfsemi 31. Mars 1969 og hefur alltaf verið staðsett í Hveragerði. Kjörís er fjórði stærsti vinnuveitandinn í Hveragerði og er starfsmenn fyrirtækisins um 50 talsins. Kjörís er meðal þekktustu vörumerkja landsins og hefur fyrirtækið fengið ýmsar viðurkenningar fyrir rekstur fyrirtækisins.

Stjórn og eigendur Kjörís ehf:

Guðmundur Kristinsson, einn af upphaflegu stofnendum fyrirtækisins Laufey S. Valdimarsdóttir, stjórnarformaður Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis Valdimar Hafsteinsson, framkvæmdarstjóri fyrirtækisins frá árinu 1993 og situr ekki í stjórn. Valdimar var valinn maður ársins 2010 í íslensku atvinnulífi að mati frjálsrar verslunar. Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjöríss, formaður samtaka iðnaðarins Sigurbjörg Hafsteinsdóttir

Ein þeirra ístegunda sem fæst í Kjörís

Sagan:

Fyrirtækið er og hefur alltaf verið fjölskyldufyrirtæki og var stofnað af bræðrunum Gylfa Hinrikssyni og Braga Hinrikssyni ásamt bræðrunum Hafsteini Guðmundi Kristinssyni og Sigfúsi Krisstinssyni. Starfsemin byrjaði upphaflega í 250 fermetra húsnæði en er nú komið í 5000 fermetra húsnæði í þremur húsum í Hveragerði ásamt dreifingarstöð á Akureyri. Framleiðslutegundir í Kjörís voru í upphafi núgga-, súkkulaði- og vanillu pakkaís ásamt frostpinnum en í dag eru vörutegundir fyrirtækisins um 160 talsins ásamt vinsælum innfluttum tegundum, t.d. frá Frisko sem framleiða meðal annars Magnum íspinna, Ben & Jerry´s og Mars og Snickers ís.


Ísdagur Kjöríss hefur verið haldinn árlega frá því 2007 á bæjarhátíðinni blómstrandi dögum í Hveragerði. Ísdagurinn er hluti af vöruþróun fyrirtækisins og lögð er sérstök ísleiðsla úr verksmiðjunni og út á bílaplan. Þar er gestum boðið upp á að bragða á nýstárlegum ístegundum. Til dæmis hefur verið boðið upp á sinnepsís, BBQ-ís, sykurpúðaís, öskuís, ís unninn úr brjóstamjólk sem og hefðbundnari bragðtegundir sem hafa að lokum farið í almenna framleiðslu hjá fyrirtækinu.

Heimildir[breyta] Vefur Kjöríss (saga fyrirtækisins) Vefur Kjöríss (um Kjörís) Viðskiptablaðið (Guðrún í Kjörís, íslenskur iðnaður er burðarásinn) Vísir (Valdimar Hafsteinsson, maður ársins í íslensku atvinnulífi) Morgunblaðið (ísdagurinn mikli) Flokkur: Íslensk fyrirtæki