Fara í innihald

Kjörís

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 13. febrúar 2015 kl. 16:08 eftir Maxí (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. febrúar 2015 kl. 16:08 eftir Maxí (spjall | framlög)

Kjörís ehf. er íslenskur ísframleiðandi staðsett í Hveragerði. Fyrirtækið hóf starfsemi 31. mars 1969 og hefur alltaf verið staðsett í Hveragerði. Kjörís er fjórði stærsti vinnuveitandinn þar í bænum og eru starfsmenn fyrirtækisins um 50 talsins. Kjörís er meðal þekktustu vörumerkja Íslands og hefur fyrirtækið fengið ýmsar viðurkenningar.

Saga

Fyrirtækið er og hefur alltaf verið fjölskyldufyrirtæki og var stofnað af bræðrunum Gylfa Hinrikssyni og Braga Hinrikssyni ásamt bræðrunum Hafsteini Guðmundi Kristinssyni og Sigfúsi Krisstinssyni. Starfsemin byrjaði í 250 fermetra húsnæði en er nú komið í 5000 fermetra húsnæði í þremur húsum í Hveragerði ásamt dreifingarstöð á Akureyri. Framleiðslutegundir Kjöríss voru í upphafi núgga-, súkkulaði- og vanillupakkaís ásamt frostpinnum en í dag eru vörutegundir fyrirtækisins um 160 talsins ásamt vinsælum innfluttum tegundum, t.d. frá Frisko sem framleiða meðal annars Magnum-íspinna, Ben & Jerry's og Mars og Snickers ís.

Ísdagur Kjöríss hefur verið haldinn árlega frá árinu 2007 á bæjarhátíðinni Blómstrandi dögum í Hveragerði. Ísdagurinn er hluti af vöruþróun fyrirtækisins og lögð er sérstök ísleiðsla úr verksmiðjunni og út á bílaplan. Þar er gestum boðið upp á að bragða á nýstárlegum ístegundum. Til dæmis hefur verið boðið upp á sinnepsís, BBQ-ís, sykurpúðaís, öskuís, ís unninn úr brjóstamjólk sem og hefðbundnari bragðtegundir sem hafa að lokum farið í almenna framleiðslu hjá fyrirtækinu.

Stjórn og eigendur fyrirtækisins

  • Guðmundur Kristinsson, einn af upphaflegu stofnendum fyrirtækisins
  • Laufey S. Valdimarsdóttir, stjórnarformaður
  • Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis
  • Valdimar Hafsteinsson, framkvæmdarstjóri fyrirtækisins frá árinu 1993 og situr ekki í stjórn. Valdimar var valinn maður ársins 2010 í íslensku atvinnulífi að mati frjálsrar verslunar.
  • Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjöríss, formaður samtaka iðnaðarins
  • Sigurbjörg Hafsteinsdóttir

Tenglar

  Þessi fyrirtækjagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.