Fara í innihald

Vesturhópshólakirkja

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 22. september 2007 kl. 00:30 eftir Jóna Þórunn (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. september 2007 kl. 00:30 eftir Jóna Þórunn (spjall | framlög) (Ný síða: {{Kirkja | mynd = Vesturhópshólakirkja.jpg | staður = Vesturhópshólar | dags =17. júní 2007 | ljósmyndari=Jóna Þórunn Ragnarsdóttir | prestur = | prestakall = Breiðabólsst...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Vesturhópshólakirkja
Vesturhópshólakirkja
Vesturhópshólar (17. júní 2007) Jóna Þórunn Ragnarsdóttir
Almennt
Prestakall:  Breiðabólsstaðarprestakall
Byggingarár:  1879
Arkitektúr
Efni:  Timbur
Turn:  Enginn

Vesturhópshólakikja er kirkja að Vesturhópshólum í Vesturhópi. Bærinn er ysti bær í sveitinni og dregur nafn sitt af urðartungu sem hefur hreyfst úr fjallinu fyrir ofan.

Kirkjan á Vesturhólshólum var byggð árið 1879 en hún var bændakirkja allt fram til 1959. Henni tilheyrir predikunarstóll sem talinn er vera frá 17. öld. og talinn smíðaður af Guðmundi Guðmundssyni „bíld“ frá Bjarnastaðahlíð. Altaristaflan í kirkjunni sýnir Krist á krossinum og er hún talin vera gömul. Á henni kemur fram nafnið Bertel Øland og ártalið 1761. Hvort tveggja, predikunarstóll og altaristafla, eru talin vera komin úr Höskuldsstaðakirkju í Vindhælishrepp.