Fara í innihald

Móasef

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 5. maí 2008 kl. 18:43 eftir Jóna Þórunn (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. maí 2008 kl. 18:43 eftir Jóna Þórunn (spjall | framlög) (Ný síða: {{Taxobox | name = Móasef | color = lightgreen | image = Juncus trifidus a4.jpg | image_width = 250px | regnum = Jurtaríki (''Plantae'') | divisio = Dulfrævingar (''Magnolioph...)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Móasef

Vísindaleg flokkun
Ríki: Jurtaríki (Plantae)
Fylking: Dulfrævingar (Magnoliophyta)
Flokkur: Einkímblöðungar (Liliopsida)
Ættbálkur: Grasbálkur (Poales)
Ætt: Sefætt (Juncaceae)
Ættkvísl: Sef (Juncus)
Tegund:
Móasef

Tvínefni
Juncus trifidus
L.

Móasef eða kvíslsef[1] (fræðiheiti: Juncus trifidus) er lágvaxið þurrlendis-sef sem vex í toppum.

Lýsing

Stráin eru fíngerð og blómin, 1 til 4 stykki, standa ofarlega, þar sem blöðin kvíslast. Blómhlífarblöð eru 6 og sömuleiðis fræflarnir. Þeir eru ljósgulir en frævan ljósgræn. Móasef er oftast 8 til 25 sentimetra hátt og blómbast í júní til júlí. Það er mjög algengt á Íslandi.

Tilvísanir

  1. Gísli Kristjánsson og Ingólfur Davíðsson. Fóðurjurtir. Prentsmiðjan Edda.