Litningsendi
Útlit
Litningsendi[1][2], einnig kallaður telómer eða oddhulsa, er kirnaröð á enda línulegra litninga. Röðin samanstendur af TTAGGG endurtekinni nokkur þúsund sinnum. Litningsendinn ver erfðaupplýsingar litningsins gegn skaða sem annars yrði vegna þess að litningurinn styttist við hverja afritun.[3]
Heimildir
- ↑ Orðið „litningsendi“ (á ensku telomere) í Orðabanka íslenskrar málstöðvar
- ↑ Máfarannsóknum lokið sumarið 2005 á Náttúrustofu Reykjaness („Skoðaður var partur af DNA sem kallast “telomere” litningsendi.“
- ↑ Magnús Jóhannsson. „Hvað er telómerasi og hver eru áhrif hans á öldrun?“. Vísindavefurinn 5.1.2001. http://visindavefur.is/?id=1263. (Skoðað 9.10.2009)