Alain Resnais
Alain Resnais (3. júní 1922 – 1. mars 2014) var franskur kvikmyndaleikstjóri og handritshöfundur sem vakti fyrst athygli með stuttmyndinni Nótt og þoka (1956) sem fjallar um útrýmingarbúðir nasista. Þekktasta mynd hans er án efa Hiroshima mon amour frá 1959 þar sem hann notar endurlit til að fjalla um erfiðar minningar persóna. Hann gerði líka eftirminnilegar tilraunir með ólínulega söguþræði í myndunum Fyrir ári í Marienbad (1961) og Muriel (1966). Fyrir ári í Marienbad fékk Gullljónið í Feneyjum 1961.
Resnais var samtíða helstu höfundum frönsku nýbylgjunnar, en leit ekki á sig sem hluta af henni. Hann vann gjarnan með rithöfundum sem ekki höfðu áður tekið þátt í kvikmyndaverkefnum, eins og Jean Cayrol, Marguerite Duras, Alain Robbe-Grillet, Jorge Semprún og Jacques Sternberg.