Loftslag
Veður |
Árstíðir |
Tempraða beltið |
Vor • Sumar • Haust • Vetur |
Hitabeltið |
Þurrkatími • Regntími |
Óveður |
Stormur • Fellibylur Skýstrokkur • Öskubylur |
Úrkoma |
Þoka • Súld • Rigning Slydda • Haglél • Snjókoma |
Viðfangsefni |
Veðurfræði • Veðurspá Loftslag • Loftmengun Hnattræn hlýnun • Ósonlagið Veðurhvolfið |
Loftslag eða veðurfar eru þeir eiginleikar veðurs sem eru einkennandi fyrir lengri tímabil, og er þá oft miðað við 30 ár. Nákvæmari skilgreining tekur til tölfræðilegra eiginleika veðurs, svo sem breytinga á milli daga og ára. Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar skilgreinir loftslag á eftirfarandi hátt:
- Loftslag í þröngum skilningi er yfirleitt skilgreint sem „meðaltalsveður“, eða á nákvæmari máta sem tölfræðileg lýsing (sem tekur til meðaltals og breytileika) á viðeigandi stærðum og eiginleikum yfir lengra tímabil, sem getur varað frá mánuðum til þúsunda eða milljóna ára. Hefðbundið viðmiðunartímabil er 30 ár, eins og það er skilgreint af stofnuninni World Meteorological Organization. Viðeigandi eiginleikar eru oftast yfirborðshitastig, úrkoma og vindur. Loftslag í víðari skilningi er, auk tölfræðilegrar lýsingar, almennt ástand veðurfarskerfisins.[1]
Loftslag og veður
[breyta | breyta frumkóða]Veður lýsir loftslagsfyrirbrigðum yfir skemmri tíma, en loftslag lýsir uppsöfnuðu veðri á tilteknum stað. Engu að síður eru mörkin á milli veðurs og loftslags ekki skýr, og geta farið eftir samhengi. Þegar hugmyndir um að aðskilja hugtökin loftslag og veður komu fyrst upp, voru loftslagsbreytingar ekki vel þekktar, svo 30 ára meðaltal var talið ríflegt til að lýsa varanlegum eiginleikum. Nú er ljóst að loftslagsbreytingar yfir lengri tíma geta átt sér stað, til dæmis vegna gróðurhúsaáhrifa.
Á Veðurstofu Íslands eru m.a. gerðar loftslagsrannsóknir og geymdar skrár um veðurfar á Íslandi.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Milliríkjanefnd um loftslagsbreytingar, Climate Change 2001, Working Group I: The Scientific Basis, Appendix I: Glossary, [1] Geymt 26 janúar 2017 í Wayback Machine