McGill-háskóli
Útlit
McGill-háskóli er ríkisrekinn rannsóknaháskóli í Montréal í Quebec í Kanada. Skólinn er nefndur eftir James McGill, kaupmanni í Montreal sem kom frá Glasgow í Skotlandi en hann gaf stofnfé skólans. McGill-háskóli var stofnaður árið 1821 og er einn af elstu háskólum Kanada.
Tæplega 35 þúsund nemendur stunda nám við skólann. Þar af stunda tæplega níu þúsund nemendur framhaldsnám.
Einkunnarorð skólans eru Grandescunt Aucta Labore
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist McGill-háskóla.