Royal Jordanian
Útlit
Royal Jordanian Airlines (arabíska: الملكية الأردنية; Al-Malakiyyah al-'Urduniyyah) er flugfélag með höfuðstöðvar í Amman í Jórdaníu. Félagið var stofnað sem hlutafélag með tilskipun frá Hussein Jórdaníukonungi 15. desember 1963. Því var síðar breytt í ríkisfyrirtæki en hlutafélagavætt aftur 2001 og einkavætt árið 2007. Það er meðlimur í flugbandalaginu Oneworld.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Royal Jordanian.