Umfeðmingur
Útlit
Umfeðmingur | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Vicia cracca L. |
Umfeðmingur (fræðiheiti: Vicia cracca) er jurt af ertublómaætt, sem ber blá blóm.
Greiningareinkenni
[breyta | breyta frumkóða]Blómin eru einsamhverf og mörg saman á stilklöngum klösum. Króna blómanna er 1 sm á lengd. Í hverju blómi eru 5 fræflar en einungis 1 fræva.
Blöðin eru fjöðruð og hafa 8 til 10 pör af langoddbaugóttum, broddyddum og hærðum smáblöðum. Á endum blaðanna koma fram langir vafþræðir sem sjá um að blómið haldist upprétt þrátt fyrir veikburða stilk.
Umfeðmingur verður 20 til 50 cm hár og vex í graslendi, sléttum engjum og annars staðar á láglendi.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Vicia cracca.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Vicia cracca.