Fara í innihald

Viðvíkurhreppur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Viðvíkurhreppur

Viðvíkurhreppur var hreppur í Skagafjarðarsýslu, milli Héraðsvatna og Hjaltadalsár,[1] kenndur við kirkjustaðinn Viðvík.[2]

Hinn 6. júní 1998 sameinaðist Viðvíkurhreppur 10 öðrum sveitarfélögum í Skagafirði: Skefilsstaðahreppi, Sauðárkrókskaupstað, Skarðshreppi, Staðarhreppi, Seyluhreppi, Lýtingsstaðahreppi, Rípurhreppi, Hólahreppi, Hofshreppi og Fljótahreppi, og mynduðu þau saman sveitarfélagið Skagafjörð.[3]

Hreppsnefnd

[breyta | breyta frumkóða]

Síðasta hreppsnefnd Viðvíkurhrepps var kosin í hreppsnefndarkosningunum 28. maí 1994 og hana skipuðu Brynleifur Siglaugsson, Halldór Jónasson, Halldór Steingrímsson, Haraldur Þór Jóhannsson og Trausti Kristjánsson.[4]

Oddvitar [5]

  1. „Vidvikurhreppur (Vidhvikurhreppur) Map, Weather and Photos - Iceland: administrative division - Lat:65.75 and Long:-19.3167“. www.getamap.net. Sótt 4. ágúst 2024.
  2. „Viðvík – Iceland Road Guide“. Sótt 4. ágúst 2024.
  3. Skagafjörður. „Fróðleikur um Skagafjörð“. Skagafjörður. Sótt 4. ágúst 2024.
  4. Háskólabókasafn, Landsbókasafn Íslands-. „Tímarit.is“. timarit.is. Sótt 4. ágúst 2024.
  5. Byggðasaga Skagafjarðar V. bindi Rípurhreppur - Viðvíkurhreppur, ritstjóri Hjalti Pálsson, bls 203
  Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.