Fara í innihald

Sómalíustraumurinn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 4. apríl 2014 kl. 10:01 eftir Akigka (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. apríl 2014 kl. 10:01 eftir Akigka (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|right|Sómalíustraumurinn að vetrarlagi '''Sómalíustraumurinn''' er hafstraumur í Indlandshafi...)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Sómalíustraumurinn að vetrarlagi

Sómalíustraumurinn er hafstraumur í Indlandshafi sem streymir meðfram strönd Sómalíu og Óman. Sómalíustraumurinn verður fyrir miklum áhrifum frá árstíðabundnum monsúnvindum og myndar eina stóra uppstreymiskerfið á vesturjaðri úthafs. Uppstreymið skapar eitt af auðugustu fiskimiðum heims.

Frá júní til september flytur heitur monsúnvindur úr suðvestri strandsjóinn í norðurátt og skapar uppstreymi við strönd Sómalíu. Vegna Ekman-flutnings berst þessi sjór frá ströndinni og djúpsjór streymir upp í staðinn. Lengra frá ströndinni blandast nærringarríkur strandsjórinn við annað uppstreymiskerfi sem stafar af áhrifum Findlater-stróksins sem blæs á ská yfir hafið í suðvestur og flytur því sjó í norðvestur. Saman mynda þessi tvö uppstreymiskerfi eitt gríðarstórt uppstreymi. Frá desember til febrúar snýst Sómalíustraumurinn við og streymir í suðvestur.