Fara í innihald

Bradford

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Svipmyndir.
Bradford

Bradford er borg í Vestur-Yorkshire sýslunni á Englandi. Bradford er við fjallsrætur Pennínafjallanna, 13,8 km vestur af Leeds og 20,9 km norðvestur af Wakefield. Henni var gefin stofnskrá árið 1897. Íbúafjöldi borgarinnar er um 537.000 (2018). Bradford er hluti stórborgarsvæðis Vestur-Miðhéraðanna þar sem meira en 1,5 milljónir búa.

Á 19. öldinni varð Bradford miðstöð vefnaðariðnaðarins og var stór ullarframleiðandi. Hann var uppgangsbær á Iðnbyltinginni og var ein fyrsta iðnvædda borg í heimi. Bradford er stundum kölluð „ullarborg heimsins“. Það er líka merkileg viktoríansk byggingarlist í borginni.

Vefnaðariðnaðinum hnignaði frá miðri 20. öldinni sem leiddi til félagslegra vandamála og kreppu. Talsvert er um suður-asískum innflytjendum þar.

  Þessi Englandsgrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.